Reglugerð um Íslandsmót Barnaskólasveita í skák

24. mars 2006
Samþykkt 19. maí. 2005.



REGLUGERÐ UM ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA Í SKÁK
1. grein.


Skáksamband Íslands heldur árlega Íslandsmót barnaskólasveita á tímabilinu febrúar til júní. Keppnin er sveitakeppni og er öllum barnaskólum heimil þátttaka. Stjórn S.Í. er heimilt að fela aðildarfélögum þess , barnaskólum eða öðrum viðeigandi aðilum mótshaldið til lengri eða skemmri tíma.
2. grein.


Í hverri sveit skulu vera fjórir aðalkeppendur auk 1-4 til vara, sem eru nemendur 1. – 7. bekkjar barnaskólans. Skulu þeir allir vera úr sama skólanum. Þeir sem hætta í skólanum geta tekið þátt í Íslandsmótinu. Séu þeir nemendur í öðrum skóla þegar keppnin hefst þá verða þeir að tefla fyrir þann skóla.
Tilkynna skal um borðaröð keppenda fyrir upphaf 1. umferðar og má ekki breyta röðinni eftir það. Forfallist fyrsta borðs maður skal annars borðs maður flytjast upp á fyrsta borð og þannig koll af kolli. Varamaður kemur inn á fjórða borð.
Óheimilt er að færa keppendur á milli sveita til dæmis úr b-sveit yfir í a-sveit. Keppendum skal raðað á fyrsta til fjórða borð eftir skákstyrkleika. Við mat á skákstyrkleika skal hafa hliðsjón af skákstigum og árangri í opinberum skákmótum. Enginn keppandi má tefla fleiri en eina skák í sömu umferð.
Sé augljóslega brotið gegn ofangreindum reglum hefur skákstjóri heimild til að dæma skákir tapaðar eða beita öðrum úrræðum til úrbóta.
3. grein.


Keppnisfyrirkomulag á Íslandsmótinu skal vera þannig að tefldar verða 6-9 umferðir eftir monrad eða svissnesku kerfi, ef næg þátttaka fæst. Að öðrum kosti skal láta sveitinar tefla einfalda umferð, allar við allar, eða skipta í undanrásarriðla og síðan yrði teflt til úrslita. Önnur atriði svo sem umhugsunartími o.fl. skulu ákveðin af mótshaldara hverju sinni.
4. grein.


Stefnt skal að því að Íslandsmót barnaskólanna fari fram á einni helgi til að auðvelda þátttöku sveita víðs vegar að af landinu.
5. grein.


Verði tvær eða fleiri sveitir jafnar og efstar að vinningum í Íslandsmótinu, skal fara fram sérstök aukakeppni milli þeirra um 1. sætið. Fyrirkomulag þeirrar aukakeppni skal ákveðið af mótshaldara hverju sinni.

6. grein.
Sigursveitin í Íslandsmótinu hlýtur rétt til þátttöku í Norðurlandamóti barnaskólasveita í skák sem fram fer á haustin.
Heimilt er stjórn S.Í. að fela taflfélögum á svæði sigursveitarinnar, Skákskóla Íslands eða öðrum ábyrgum aðilum, að annast undirbúning að þátttöku í Norðurlandamótinu.


7. grein.
Allan ferðakostnað í sambandi við þátttöku á Íslandsmótinu skulu skólasveitirnar greiða sjálfar. Einnig fæðis-og gistikostnað á meðan á Íslandsmótinu stendur.

föstudagur 3 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Reykjavíkurskákmótiđ...
Nú eru línur farnar að skýrast með...
Ólympíulandsliđ...
Helgi Ólafsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt stjórn SÍ...
Lenka...
Lenka Ptácníková varð Íslandsmeistari kvenna í skák...