Skáklög Skáksambands Íslands

Samþykkt á aðalfundi 2011.

 

1. kafli
Skákreglur og skákstjórn

1. grein.
Skákreglur Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) gilda í sérhverri skákkeppni á vegum Skáksambands Íslands og félaga innan þess, nema annað sé sérstaklega auglýst. 
 
2. grein.
Fyrir hverja skákkeppni, sem Skáksambandsstjórnin sér um framkvæmd á, skal skipaður skákstjóri sem annast stjórn keppninnar og úrskurðar deiluatriði.  Úrskurður skákstjóra er endanlegur, nema um túlkun á skákreglum FIDE eða ákvæðum þessara laga sé að ræða, en þá getur deiluaðili áfrýjað til Dómstóls S.Í., sem þá hefur endanlegt úrskurðarvald.  Ef áfrýjunarnefnd er í móti, kemur hún í stað dómstólsins.
 
2. kafli
Skákþing Íslands

3. grein.
Skákþing Íslands skal haldið ár hvert. Stjórn Skáksambands Íslands sér um framkvæmd þess.  Keppt skal í eftirtöldum flokkum:
a)      Landsliðsflokki.
b)      Áskorendaflokki, flokki undir 2000 skákstigum og flokki undir 1600 skákstigum.
c)      Unglingaflokki.
d)      Kvennaflokki.
e)      Drengja- og telpnaflokki.

f)       Pilta- og stúlknaflokki.
g)      Barnaflokki.
Skáksambandsstjórn er heimilt að sameina áskorendaflokk og unglingaflokk, og skal þá sá, sem efstur er þeirra, sem ella hefðu keppt í unglingaflokki hljóta þann titil og umbun, sem sigurvegari í unglingaflokki hefði ella hlotið. 
S.Í. skal einnig gangast fyrir Hraðskákmóti Íslands og Atskákmóti Íslands. Stjórnin ákveður hverju sinni þátttökugjöld og verðlaun.
Þátttökuréttur á Skákþingi Íslands er ekki skilyrtur við íslenskan ríkisborgararétt.  Íslandsmeistaratign getur sá einn borið sem hefur heimild til að vera fulltrúi Íslands í öllum alþjóðlegum mótum.
 
4. grein.
Landsliðsflokkur
Eftirtaldir keppendur hafa þátttökurétt í landsliðsflokki:
1. Þrír efstu menn í landsliðsflokki á síðasta Skákþingi Íslands, og einn til vara.
2. Tveir efstu menn í áskorendaflokki á síðasta Skákþingi Íslands.
3. Þrír stigahæstu menn landsins aðrir en þeir, sem falla undir lið 1. eða 2, og tveir  til vara
4. Aðrir keppendur valdir af stjórn Skáksambands Íslands.  

Skáksambandsstjórn skal a.m.k. tveim mánuðum áður en keppni í landsliðsflokki hefst, tilkynna hversu margir keppendur verða og hvar keppnin verður haldin. Jafnframt skal tilkynna hvaða menn hafi rétt til þátttöku skv. tl. 1-3 og gefa þeim hálfsmánaðar frest til að ákveða hvort þeir tefli.  Mánuði áður en keppnin hefst skal Skáksambandsstjórn hafa valið þá sem hún býður til þátttöku.

Við val á keppendum, skv. 3. og 4. tl., hér að framan, skal stjórn Skáksambandsins hafa til hliðsjónar alþjóðleg skákstig og árangur skákmanna á nýafstöðnum mótum, enda hafi þeir teflt eigi færri en 30 kappskákir á undanförnum 24 mánuðum.  Stjórn S.Í. hefur heimild til að falla frá þessum mörkum við mjög sérstakar aðstæður.

 
 
 5. grein.
Efsti maður í hverjum flokki hlýtur nafnbótina Skákmeistari Íslands (í viðkomandi flokki).
Verði tveir keppendur efstir og jafnir, skulu þeir tefla fjögurra skáka einvígi um titilinn Skákmeistari Íslands. Verði þeir enn jafnir, skulu þeir tefla áfram, og hlýtur sá titilinn, sem fyrr vinnur skák.
Verði fleiri en tveir keppendur efstir og jafnir, skulu þeir tefla til úrslita með tvöfaldri umferð. Ef tveir keppendur verða efstir og jafnir eftir þá keppni, skulu þeir tefla áfram, og hlýtur sá titilinn, sem fyrr vinnur skák. Ef fleiri en tveir verða jafnir eftir þessa aukakeppni, skulu þeir tefla einfalda umferð til úrslita, og síðan áfram, ef einhverjir verða jafnir.
Í öðrum flokkum en landsliðsflokki skal einnig gilda sú regla að ef tveir eða fleiri keppendur verða jafnir að vinningum í þeim sætum, sem veita meistaratitil, sæti í landsliðsflokki, eða önnur mikilvæg réttindi, þá skal fara fram sérstök aukakeppni milli þeirra. Fyrirkomulag slíkrar keppni skal ákveðið af Skáksambandsstjórn hverju sinni.

6. grein

Styðjast skal við mótareglur FIDE (Fide Tournament Rules) varðandi aðstæður í keppnissal og aðbúnað keppenda í landsliðsflokki.  Nánari leiðbeiningar eru í sérstakri reglugerð.
 
 7. grein.
 Áskorendaflokkur
Í áskorendaflokki skulu tefldar níu umferðir eftir monrad eða svissnesku kerfi.  Flokkurinn skal opinn öllum, sem ekki hafa unnið sér rétt til þátttöku í landsliðsflokki.  Ef þátttakendur eru færri en 20 má fækka umferðum.  Skáksambandsstjórn skal með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara tilkynna hvar og hvenær flokkurinn fari fram. 
 
8. grein.
Kvennaflokkur
Stjórn Skáksambands Íslands skal árlega ákveða fjölda keppenda og keppnisfyrirkomulag í landsliðsflokki kvenna.  Síðasti Íslandsmeistari skal ávallt eiga rétt á þátttöku.
 
9. grein.

Unglinga- og barnaflokkar

Í unglingaflokki eiga þátttökurétt þeir sem verða 20 ára á almanaksárinu og yngri.  Í drengja-og telpnaflokki keppa 15 ára og yngri á almanaksárinu.  Í pilta-og stúlknaflokki keppa 13 ára og yngri á almanaksárinu.  Í barnaflokki 11 ára og yngri á almanaksárinu.
 
10. grein.

Ef vafi leikur á um rétt keppenda til þátttöku í einstökum flokkum, sker skáksambandsstjórn úr því. Dómstóll S.Í. úrskurðar um allan ágreining, sem upp kann að koma varðandi túlkun þessara skáklaga.
 
11. grein.
Hraðskákmót Íslands
Stjórn SÍ. ákveður tímasetningu hverju sinni og sér um framkvæmd mótsins.  Sigurvegari hlýtur nafnbótina Hraðskákmeistari Íslands. 

 

12. grein.
Atskákmót Íslands
skal haldið í einu þrepi.  Öllum er heimil þátttaka og skal teflt með útsláttarfyrirkomulagi.  Raðað verður í mótið skv. atskákstigum og ákvæðum reglugerðar stjórnar S.Í. um mótið.

 

13. grein.
Umhugsunartími.
Skáksamband Íslands ákveður tímamörk á skákmótum á vegum sambandsins í samræmi við reglur FIDE, alþjóðaskáksambandsins.  Tímamörk skulu auglýst um leið og dagsetningar viðkomandi skákmóts.

 

 14. grein.
Stjórn Skáksambands Íslands lætur reikna a.m.k. tvisvar á ári skákstig fyrir íslenska skákmenn, sem þátt taka í skákmótum á vegum sambandsins eða aðildarfélaga þess. Stjórn Skáksambandsins setur nánari reglur um hvaða skilyrði skákmót þurfa að uppfylla til að vera tekin til útreiknings.

 
15. grein.

Stjórn Skáksambands Íslands annast val landsliðs Íslands í skák, (karla-, kvenna- og unglinga-landslið), hverju sinni, svo og þátttakendur Íslands í alþjóðlegum mótum á vegum FIDE.
Við val á keppendum og skipan í landsliðssæti skal stjórnin hafa til hliðsjónar alþjóðleg skákstig og árangur skákmanna á nýafstöðnum mótum, enda hafi þeir teflt eigi færri en 80 kappskákir á undan-förnum 24 mánuðum.  Stjórn S.Í. hefur heimild til að falla frá þessum mörkum við mjög sérstakar aðstæður.
Þó skal Skákmeistari Íslands ávallt eiga sæti í landsliði Íslands og rétt til að tefla fyrir Íslands hönd á svæðismóti FIDE. 
Stjórn S.Í. skal fela sérstakri nefnd eða þjálfara að gera tillögu til hennar um skipan landsliðs. Stjórn S.Í. skal tryggja að skákmenn sem tefla fyrir Íslands hönd í einstaklings- eða liðakeppni og eru sendir á slík mót á vegum S.Í. fái viðeigandi þjálfun hjá færum þjálfara eða þjálfurum."

 

3. kafli
Íslandsmót skákfélaga

 16. grein.
Stjórn Skáksambands Íslands gengst árlega fyrir Íslandsmóti skákfélaga.  Keppnin er sveitakeppni og eiga öll skuldlaus taflfélög eða svæðasambönd innan S.Í þátttökurétt.  Stjórn S.Í. skal ákveða keppnisdaga og þátttökugjöld fyrir 1. september ár hvert.  

 

17.grein.
Keppninni skal skipt í fjórar deildir.  Efsta sveit í 1. deild er sigurvegari keppninnar. Fjöldi vinninga skal ráða úrslitum um endanlega röð sveita í deildum þar sem allir tefla við alla. Verði vinningar jafnir, skulu liðsstig (matchpoints) ráða.  Fjöldi liðstiga (matchpoints) skulu ráða úrslitum um endanlega röð í deildum þar sem teflt er eftir svissneska kerfinu. Verði liðstigin jöfn skulu vinningar ráða.  Hvert félag á rétt á að senda svo margar sveitir til keppninnar sem það óskar.  Þó mega ekki vera fleiri en tvær sveitir frá nokkru félagi í fyrstu deild og ekki fleiri en fjórar samanlagt í fyrstu og annarri deild.  Þó er félögum sem hafa með sér svæðissamband, heimilt að sameinast um eina eða fleiri sveitir.

 
18. grein.
Átta lið skulu vera í tveimur efstu deildunum en sextán lið í þriðju deild. Stjórn S.Í. hefur rétt til að fjölga eða fækka liðum í þriðju og fjórðu deild þyki henni ástæða til. Tvö efstu lið annarrar og þriðju deildar og þrjú efstu lið fjórðu deildar færast upp í lok keppnistímabils en tvö neðstu lið fyrstu og annarrar deildar og þrjú neðstu lið þriðju deildar færast niður..

 

19.grein.

Aðeins þeir sem eru í Keppendaskrá SÍ teljast löglegir með viðkomandi félagi í Íslandsmóti skákfélaga (fyrri - og seinni hluta).  Þó eru þeir skákmenn sem eru án skákstiga og án félags undanþegnir því að þurfa að vera í Keppendaskránni.

Tilkynning skákmanns skv. 2.gr. reglugerðar um Keppendaskrá Skáksambandsins skal hafa verið send 20 dögum fyrir upphaf fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga ella getur hann ekki teflt fyrir sitt nýja félag í því.

Athugasemdir vegna Keppenda-skrárinnar skulu hafa borist SÍ viku fyrir mót og SÍ að úrskurða í síðasta lagi fimm dögum fyrir upphaf Íslandsmóts skákfélaga.

Eftir fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga er skákmanni með lögheimili á Íslandi heimilt að ganga í taflfélag og tefla fyrir nýja taflfélagið sitt í seinni hlutanum, að því gefnu að hann hafi ekki teflt fyrir gamla taflfélagið sitt í fyrri hlutanum. Til að skákmenn teljist löglegir með hinu nýja félagi skulu slíkar breytingar vera tilkynntar 20 dögum fyrir síðari hlutann.

 

20. grein.
Keppendur skulu vera skráðir í Keppendaskrá Skáksambandsins sem félagsmenn þeirra taflfélaga sem þeir tefla fyrir.  Raða skal keppendum í sveitir og borð eftir styrkleika.  Fyrir upphaf 1.umferðar fyrri hluta ÍS skulu félögin skila inn styrkleikaröðuðum lista allra þeirra keppenda sem þeir hyggjast nota í keppninni. Ekki er leyfilegt að breyta þeirri röð eftir að keppni hefst.  Keppandi getur flust upp eða niður um sveit hvenær sem er keppninnar en heildarröð keppenda verður að haldast.  Komi lið ekki til keppni án orsaka tapar það skákum á öllum borðum.  Komi slíkt fyrir tvisvar skal liðið dæmt úr keppninni.  Í hverri viðureign skal a.m.k. helmingur liðsmanna hverrar sveitar vera íslenskir ríkisborgarar eða hafa verið með lögheimili sitt á Íslandi undanfarið ár.

 

21.grein.
Stjórn Skáksambandsins skal árlega skipa sérstaka mótsstjórn sem sker úr um lögmæti keppenda ef beiðni um athugun á lögmæti viðkomandi liggur fyrir eða ef kæra berst mótsstjórninni. Beiðni um athugun og/eða kæra skal berast mótsstjórn, eða skákstjórum fyrir hennar hönd, áður en keppni lýkur í þeirri umferð sem ólöglegur keppandi telst hafa teflt í. Mótsstjórn skal kynna framkomna kæru eða beiðni því félagi sem teflir fram keppandanum og gefa félaginu stuttan frest til að koma fram andmælum. Úrskurður skal liggja fyrir áður en næsta umferð mótsins hefst. Úrskurðir Mótanefndar skulu rökstuddir og afrit þeirra afhent báðum málsaðilum innan klukkustundar eftir að úrskurður hefur verið kveðinn upp. Ef keppandi er úrskurðaður ólöglegur, skal viðkomandi viðureign tapast 2-6 hið minnsta þegar um er að ræða 8 manna lið en 1,5-4,5 þegar um er að ræða 6 mann lið. Tapist viðureignin hins vegar enn stærra standa þau úrslit og skal skák ólöglegs keppenda ávallt teljast töpuð.  Úrskurði mótsstjórnar má skjóta til Dómstóls SÍ og skulu slík erindi hafa verið send Dómstólnum innan þriggja sólarhringa frá upphafi þeirrar umferðar, sem keppandinn var á meðal þátttakenda. Dómur Dómstóls S.Í. skal liggja fyrir eigi síðar en 5 sólarhringum eftir að erindið barst. Skákstjóri úrskurðar um önnur vafaatriði.

 

22.grein
Stjórn S.Í. setur reglugerð um nánari framkvæmd Íslandsmóts skákfélaga. 

 

laugardagur 25 maí 05 2013
Nýjustu fréttir
Schedule and more...
You can now see detailed schedule of all rounds, highlights and side event here. Because of parties...
Women World...
We welcome Women World Champion Hou Yifan to the Reykjavik Open 2012 !The Canadian Grandmaster...
Games and...
Now we have almost all games and tournament tables from all the Reykjavik Open's from year 1964...