Íslandsmótið í netskák
Íslendingar voru að sjálfsögðu fyrstir til að halda landsmót í netskák, þrátt fyrir tilraunir ýmsra annarra til að halda öðru fram. Það voru Gunnar Björnsson og Hellismenn, sem riðu á vaðið og héldu mótið á dönskum netþjóni árið 1996. Síðar færðist mótið yfir á ICC (Internet Chess Club). Þráinn Vigfússon varð fyrsti Íslandsmeistarinn í netskák.
Hellismenn hafa haldið mótið alla tíð og gert það með sóma. Um tíma var mótið lokapunktur á hinni bráðskemmtilegu Bikarsyrpu Hellis á ICC.
Núverandi Íslandsmeistari í netskák er Arnar E. Gunnarsson, en hann hefur jafnframt unnið oftast allra, eða fjórum sinnum. Aðeins tveir skákmenn hafa tekið þátt í öllum mótunum, Gunnar Björnsson og Hrannar Baldursson.
Íslandsmeistarar í netskák
(tekið af heimasíðu Hellis)
1996: Þráinn Vigfússon1997: Benedikt Jónasson1998: Róbert Harðarson1999: Davíð Kjartansson2000: Stefán Kristjánsson2001: Helgi Áss Grétarsson2002: Arnar E. Gunnarsson2003: Arnar E. Gunnarsson2004: Stefán Kristjánsson2005: Arnar E. Gunnarsson2006: Snorri G. Bergsson (Omar Salama)2007: Stefán Kristjánsson2008: Arnar E. Gunnarsson