Ýmsir alþjóðlegir viðburðir

Íslendingar hafa haldið ýmis athygliverð mót eins lengi og elstu menn muna. Erlendir aðilar komu hér að málum þegar í upphafi, en til að mynda tók öðlingurinn og Íslandsvinurinn Daniel Willard Fiske ríkan þátt í stofnun og uppbyggingu Taflfélags Reykjavíkur. Hjá því félagi starfaði, rétt eftir aldamótin 1900, einn af fremstu skákmönnum heims, William Ewart Napier.

Á fyrstu áratugum 20. aldar komu hingað einstaka erlendir skákmeistarar til keppni, einkum frá Norðurlöndunum og Bretlandi, en einnig má nefna heimsmeistarann Alexander Aljekín, sem sótti Ísland heim á fjórða áratugnum. Jafnframt gerðu ýmsir Íslendingar garðinn frægan við skákborðið í hinum stóra heimi, einkum Vestur-Íslendingar og stúdentar í Danmörku.

Íslendingar tóku að sækja héðan alþjóðleg mót á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld, en einkum var þar um að ræða liðakeppni. Ólympíumótin stóðu þar hæst, en síðar Skákþing Norðurlanda og annars konar norræn mót. Síðar tóku landsmenn að halda alþjóðleg mót þegar vel stóð á, t.d. þegar erlenda gesti bar að garði. Þegar fyrsta Reykjavíkurskákmótið var haldið 1964 höfðu þegar nokkur alþjóðamót verið haldin hér á landinu bláa. Íslendingar voru að komast á hið alþjóðlega skákmótakort.

 

Reykjavíkurskákmótin Ýmsir alþjóðlegir viðburðir 
Glitnir Blitz 2006 Skákþing Norðurlanda 
   
   
   
   
   
   
   
   
   
   

fimmtudagur 9 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Reykjavíkurskákmótiđ...
Nú eru línur farnar að skýrast með...
Ólympíulandsliđ...
Helgi Ólafsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt stjórn SÍ...
Lenka...
Lenka Ptácníková varð Íslandsmeistari kvenna í skák...