Fréttir
02.09.10
Reykjavíkurskákmótiđ 2011
Nú eru línur farnar að skýrast með Reykjavíkurskákmótið 2011. Mótið verður haldið í Ráðhúsinu dagana 9. - 16.mars. Eins og áður er það í beinu framhaldi af Íslandsmóti skákfélaga, en byrjar að þessu sinni einu degi seinna en vanalega eða á miðvikudegi. Mótið er einnig Norðurlandamótið í skák 2011 og hluti af mótaröð Sambands atvinnuskákmanna ( ACP ). Umferðir munu byrja kl 16:30 eða klukkustund seinna en í fyrra. Annars munu upplýsingar um mótið smám saman uppfærast á heimasíðu mótsins www.chess.is þegar þær verða ljósar.



