Emil Sigurðarson, Laugalækjaskóla í Reykjavík, og Kristófer Gautason, Grunnskólanum í Vestmannaeyjum urðu í dag Íslandsmeistarar í skólaskák. Emil í eldri flokki (8.-10. bekk) á sínu fyrsta ári í þeim flokki og Kristófer í yngri flokki (1.-7. bekk). Báðir tryggðu þér sigur í lokaumferðinni. Emil með jafntefli gegn Erni Leó Jóhannssyni, sem varð annar, og Kristófer með sigri á Oliveri Aroni Jóhannessyni, sem var efstur fyrir umferðina, í yngri flokki.
Alls tóku 24 skákmenn þátt í Landsmótinu úr öllum kjördæmum. Landsmótsstjóri og aðalskákstjóri var Páll Sigurðsson en honum til aðstoðar var Ólafur S. Ásgrímsson.
Nánar á: http://www.skak.blog.is/blog/skak/entry/1053160/



