Fréttir
22.03.09
Bolvíkingar Íslandsmeistarar skákfélaga
Taflfélag Bolungarvíkur vann öruggan sigur á Íslandsmóti skákfélaga sem er nýlega lokið. Í lokaumferðinni lögðu Vestfirðingarnir Hellismenn örugglega að velli 6,5-1,5. Hellismenn urðu aðrir og Fjölnismenn þriðju, Haukamenn urðu fjórðu og fráfarandi Íslandsmeistarar Taflfélags Reykjavíkur urðu fimmtu. Taflfélag Vestmannaeyja vann í öðru deild, b-sveit Bolvíkinga í þriðju deild og sveit Máta í fjórðu deild.
Lokastaðan í 1. deild:
- Bolungarvík 44,5 v.
- Hellir-a 35,5 v.
- Fjölnir 33 v.
- Haukar 29 v.
- TR-a 28,5 v.
- Hellir-b 22 v.
- SA-a 18 v.
- TR-b 13,5 v.
Staðan í 2. deild:
- TV 31,5 v.
- Haukar-b 25,5 v.
- KR 23 v.
- SR 21 v.
- TG 17,5 v.
- Hellir-c 17 v.
- SA-b 16,5 v.
- Selfoss 16 v.
Staðan í 3. deild:
- Bolungarvík 37 v.
- Akranes 24,5 v.
- TR-c 24,5 v.
- TG 17,5 v.
- Hellir-d 16,5 v.
- Haukar-c 16,5 v.
- TR-d 16 v.
- Reykjanesbær 15,5 v.
Staða efstu liða í 4. deild:
- Mátar 27 v.
- Bolungarvík-c 25 v.
- Víkingaklúbburinn 23 v .
- Goðinn 22,5 v.
- KR-b 22,5 v.
- TV-b 22,5 v.



